top of page

Skilmálar

Af því að við viljum heiðarlega viðskiptahætti

Upplýsingar um seljanda

Ossom útlit ehf.
Kt. 421020-1080
Hamraborg 10, 2. hæð, 200 Kópavogur.
Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu og þjónustu á hárkollum, hárlengingum, höfuðfötum og almennum snyrtivörum.

Almennt

Ossom.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti.
Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

Skilafrestur og endurgreiðsla

EKKI er hægt að skila né skipta útsöluvörum nema ef um galla er að ræða.
Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 15 daga. Varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í óopnuðri upphaflegri pakkningu. Við endurgreiðum vöruna innan 10 daga frá því að við fáum hana í hendur. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið ossom(at)ossom.is áður en vöru er skilað.

Kvartanir

Sú skylda er á kaupanda að yfirfara vöruna og sannreyna að um rétta og óskemmda vöru sé að ræða, áður en varan er tekin í notkun. Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Ef vara er gölluð mun Ossom Útlit taka afstöðu um hvort vara er endurgreidd eða skipt út eða send í viðgerð. Sú ákvörðun er tilkynnt viðskiptavini innan 10 virkra daga.

Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara. Ef staðfestingargjald hefur verið greitt breytist verð ekki nema ef stórfelldar gengisbreytingar eiga sér stað 

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Greiðslumátar

Hægt er að greiða með Visa og Mastercard í gegnum örugga greiðslugátt.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram.
Sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspósts.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum

Sendingar úr kerfi verslunarinnar Ossom.is kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

bottom of page