top of page
Fjólublá lína - Meðferð gegn flösu í hársverði (Strong)

Fjólublá lína - Meðferð gegn flösu í hársverði (Strong)

25.494krPrice

CRLAB meðferð gegn flösu í hársverði hreinsar hársvörðinn og varnar uppbyggingu á flösu, rauðum hársverði, kláða ofl. Hefur t.d reynst fólki með psoriasis vel.

 

Fjólubláa línan frá CRLab er notað gegn flösu og þurrum hársverði. Meðferðin er sérstaklega góð fyrir fólk sem er með viðkvæman hársvörð, ertingu og kláða. Olían sem notuð er í þessari meðferð gefur raka í hársvörðin og hamlar bakteríugróðri sem oft er ástæða flösu. Strong meðferðin er alla jafnan notað fyrsta mánuðinn. Eftir fyrsta mánuðinn er gerð hárgreining og þá kemur í ljós hvort hægt er að skipta yfir í Maintenance sem er örlítið vægari en viðheldur sömu virkninni og stuðlar engu að síður að góðum árangri meðferðarinnar.

 

Línan er eins mánaðar meðferð (notað á 3 daga fresti samkvæmt fyrirmælum).

Pre-sjampoo - Sjampóið er borið í þurran hársvörðinn. Sjampóið hreinsar hársvörðin og gefur hársverðinum raka. Látið bíða í 15 mínútur

Sjampó - Sjampóið er notað eins og venjulegt sjampó og kemur hársverðinum í jafnvægi ásamt því að vinna gegn flösu.

Hárlotion - Lotionið er borið í rakann hársvörð og látið bíða í 2-3 mínútur áður en það er þurrkað á venjulegan hátt. Vökvinn vinnur gegn uppbyggingu á flösu hjálpar húðinni að ná réttu rakastigi.

 

ATHUGIÐ: Við mælum með að koma í hárgreiningu áður til að tryggja að þú sért að nota rétta meðferð fyrir ÞIG. Einnig er betur hægt að fylgjast með árangri ef farið er reglulega í hárgreiningu á meðan á meðferð stendur.

bottom of page